Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH var mjög ósáttur við 8 marka tap sinna manna í Eyjum í kvöld en leikur ÍBV og FH í 7. umferð Olís deildar karla fór fram í kvöld. Leikurinn endaði 31:23 fyrir ÍBV og enn gengur FH-ingum ekki nægilega vel í stigasöfnun.
„Ég er virkilega ósáttur við effortið sem við erum að leggja í þetta,“ sagði Halldór Jóhann en hann sagði sína menn ekki hafa nennt að hlaupa til baka og kastað boltanum hvað eftir annað til Eyjamanna.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.