Aðalheiður Hreinsdóttir hefur ákveðið að leika með handknattleiksliði Vals á nýjan leik eftir að hafa dvalið í Bandaríkjunum frá síðasta sumri. Aðalheiður hefir skrifað undir samning við Val sem gildir fram á næsta ár.
Aðalheiður, sem er 26 ára gömul, hefur leikið með handknattleiksliði Vals um árabil og var m.a. í Íslandsmeistaraliðinu vorið 2014. Hún er gjaldgeng nú þegar með Valsliðinu.