Díana Dögg til Vals

Díana Dögg Magnúsdóttir leikur með Val á næsta keppnistímabili.
Díana Dögg Magnúsdóttir leikur með Val á næsta keppnistímabili. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Handknattleikskonan Díana Dögg Magnúsdóttir hefur ákveðið að ganga til liðs við Val og segja þar með skilið við ÍBV. 

Þetta kemur fram á Twitter-síðu Vals. Díana Dögg er ein af efnilegri handknattleikskonum landsins. Hún var m.a. í U20 ára landsliðinu sem lék í undankeppni EM hér á landi í síðasta mánuði. 

Díana Dögg lék 24 af 26 leikjum ÍBV í Olís-deildinni og skoraði 61 mark.  Einnig skoraði hún 15 mörk í þremur leikjum með ÍBV í átta liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert