Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, tapaði tveimur síðustu leikjum sínum í riðlakeppni Opna Evrópumótsins sem stendur yfir í Gautaborg. Þar með tapaði liðið þremur af fjórum viðureignum sínum og leikur um 13.-18. sætið á mótinu.
Í gær tapaði íslenska liðið fyrir landsliði Rúmeníu, 16:12, en vann Svartfjallaland, 15:9. Í dag tapaði liðið fyrir landsliði Sviss, 14:12, og með tíu marka mun fyrir norska landsliðinu, 24:14. Norska liðið vann alla leiki sína í riðlakeppninni og þykir afar sigurstranglegt á mótinu.
Mörk íslenska landsliðsins í leiknum við Sviss í dag: Sandra Erlingsdóttir 6, Lovísa Thompson 3, Andrea Jacobsen 2 og Elín Ólöf Guðjónsdóttir 1.
Mörk íslenska landsliðsins í leiknum við Noreg: Sandra Erlingsdóttir 6, Anna Katrín Stefánsdóttir 3, Andrea Jacobsen 2, Elín Helga Lárusdóttir 1, Lovísa Thompson 1 og Berta Rut Harðardóttir 1.
Á morgun mætir íslenska landsliðið því slóvakíska og liði Georgíu á fimmtudaginn í keppninni um 13.-18. sæti mótsins.