Króatíski handknattleiksmaðurinn Josip Juric Grgic hefur skrifað undir samning við karlalið Vals um að leika með því á næsta keppnistímabili. Grgic, sem er 21 árs, hefur æft með Valsliðinu síðustu daga.
Grgic er hægri handar skytta og lék á síðustu leiktíð með félagsliði í Doha í Katar. Þar áður var hann á mála hjá RK Dubrava í heimalandi sínu í eitt ár eftir að hafa alist upp í herbúðum Croatía Zagreb og var m.a. í leikmannahópi liðsins í meistaradeildinni 2013-2014.
Grgic var í silfurliði U20 ára liðs Króatíu á heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi fyrir þremur árum.