Fram sigraði Selfoss, 28:24, þegar liðin mættust í fyrstu umferð úrvalsdeildar kvenna í handknattleik, Olís-deildarinnar, á Selfossi í dag. Staðan í hálfleik var 15:10, Fram í hag.
Mörk Selfoss: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 7, Kristrún Steinþórsdóttir 4, Perla Ruth Albertsdóttir 4, Carmen Palamariu 4, Adina Maria Ghidoarca 3, Arna Kristín Einarsdóttir 1, Tinna Soffía Traustadóttir 1.
Mörk Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 7, Steinunn Björnsdóttir 6, Anna Þyrí Ólafsdóttir 4, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 4, Hildur Þorgeirsdóttir 3, Hekla Rún Ámundadóttir 2, Elísabet Mjöll Guðjónsdóttir 1, Marthe Sördal 1.