„Við erum með meiri breidd í leikmannahópnum í ár en í fyrra að mínu mati. Við missum Florentinu [Stanciu] og hún skilur að sjálfsögðu eftir sig stórt skarð. Við höfum hins vegar fengið til liðs við okkur Hafdísi [Lilju Torfadóttur] úr Fram og erum enn með Heiðu [Ingólfsdóttur] í okkar röðum þannig að við erum í fínum málum hvað markmenn varðar. Síðan erum við búin að styrkja okkur í þær stöður þar sem það vantaði breidd á síðustu leiktíð. Við erum með tvo sterka leikmenn í hverri einustu stöðu,“ sagði Sólveig Lára Kjærnested, fyrirliði Stjörnunnar spurð um leikmannahópinn fyrir átökin í Olís-deild kvenna í handknattleik.
„Þetta verður langur og strangur vetur og við verðum að vera klárar í baráttuna strax í fyrsta leik um helgina. Undirbúningurinn hefur gengið rosalega vel. Við fórum í góða æfingaferð til Spánar og þar náðum við að þétta hópinn, koma nýjum leikmönnum inn í kerfin okkar og stilla saman strengi. Við erum að mínu mati komnar lengra í undirbúningnum en á sama tíma í fyrra sem er jákvætt,“ sagði Sólveig Lára enn fremur um það hvar Stjörnuliðið er statt á þessum tímapunkti.
„Við gerðum vel að mínu mati á síðustu leiktíð að koma okkur í úrslitaeinvígið, en okkur langar að stíga einu skrefi lengra í ár og taka titilinn að þessi sinni,“ sagði Sólveig Lára Kjærnested, fyrirliði Stjörnunnar.
Stjarnan mætir ríkjandi deildarmeisturum, Haukum, í fyrstu umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í TM höllinni í dag. Flautað verður til leiks klukkan 13.30. Á sama tíma hefst viðureign ÍBV og Íslandsmeistara Gróttu í Vestmannaeyjum. Klukkan 14 leiða Selfoss og Fram saman hesta sína á Selfoss. Fjórði leikur fyrstu umferðar fer fram á mánudaginn í Valshöllinni þegar Fylkir sækir Val heim klukkan 19.30.
Lið Stjörnunnar leiktíðina 2016-2017 í Olís-deild kvenna:
Hafdís Lilja Torfadóttir, markvörður
Heiða Ingólfsdóttir , markvörður
Ástríður Viðarsdóttir, markvörður
Aðalheiður Hreinsdóttir, vinstra horn
Stefanía Theodórsdóttir, vinstra horn
Brynhildur Bergmann Kjartansdóttir, skytta vinstra megin
Helena Rut Örvarsdóttir, skytta vinstra megin
Nataly Sæunn Valencia , skytta vinstra megin
Þorgerður Anna Atladóttir , skytta vinstra megin
Esther Viktoría Ragnarsdóttir, miðjumaður
Kristín Viðarsdóttir, miðjumaður
Rakel Dögg Bragadóttir, miðjumaður
Sólveig Lára Kjærnested, skytta hægra megin
Hanna Guðrún Stefánsdóttir, hægra horn
Ragnheiður Tómasdóttir, hægra horn
Elena Birgisdóttir, línumaður
Þórhildur Gunnarsdóttir, línumaður
Anita Theodórsdóttir, línumaður
Arna Björk Almarsdóttir, línumaður
Andrea Valdimarsdóttir, línumaður/horn.
Þjálfari: Halldór Harri Kristjánsson
Komnar frá síðasta keppnistímabili:
Aðalheiður Hreinsdóttir , frá Val
Þorgerður Anna Atladóttir, frá Leipzig í Þýskalandi
Elena Birgisdóttir kemur, frá Selfossi
Hafdís Lilja Torfadóttir, frá Fram
Brynhildur Bergmann Kjartansdóttir, að láni frá ÍR
Farnar eftir síðasta keppnistímabil:
Florentina Stanciu, til Rúmeníu
Arna Dýrfjörð, náms í Danmörku
Kolbrún Gígja Einarsdóttir, til KA/Þór
Guðrún Erla Bjarnadóttir, til Hauka
Sandra Rakocevic, til Svartfjallalands