Atli Ævar Ingólfsson og félagar hans í Sävehof héldu sigurgöngu sinni áfram í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.
Sävehof vann stórsigur á Rioch, 36:22, þar sem Atli Ævar skoraði 5 mörk fyrir sína menn en Magnús Óli Magnússon skoraði 2 mörk fyrir Rioch. Sävehof hefur unnið alla fimm leiki sína í deildinni.
Íslendingaliðið Kristianstad sem á titil að verja vann Karlskrona á útivelli, 24:22. Ólafur Guðmundsson skoraði 4 mörk fyrir Kristianstad og þeir Gunnar Steinn Jónsson og Arnar Freyr Arnarsson skoruðu 2 mörk hvor.