Úrvalslið Íslands í handbolta

Íslenska landsliðið.
Íslenska landsliðið. mbl.is/Golli

Morgunblaðið birtir í dag kvennaliðið í handbolta í Úrvalsliði Íslands eða besta kvennalandsliðið sem Ísland gæti teflt fram í handbolta óháð tíma samkvæmt atkvæðagreiðslu hjá álitsgjöfum blaðsins. 

Liðið er að finna í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag og karlaliðið verður birt í blaðinu í fyrramálið. 

Hinn 7. maí í fyrra voru birt í blaðinu Úrvalslið Íslands, karla og kvenna í körfubolta, samkvæmt sambærilegri atkvæðagreiðslu og síðar mun blaðið einnig láta velja karla- og kvennalið í fótbolta. 

Lesendum mbl.is mun á næstu dögum gefast tækifæri til að setja saman sín úrvalslið í handboltanum. Verður þar hægt að velja á milli þeirra leikmanna sem atkvæði fengu hjá álitsgjöfunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert