Handknattleikskonan Arna Sif Pálsdóttir var markahæsti leikmaður vallarins með sex mörk, í 24:24 jafntefli Nice og Chambray í frönsku A-deildinni í kvöld. Arna jafnaði leikinn fyrir Nice í blálokin.
Nice komst 18:10 yfir, en Chambray var töluvert sterkari aðilinn á lokakaflanum.
Stigið gæti reynst mikilvægt því Nice er nú tveimur stigum á eftir öruggu sæti í deildinni þegar einum leik er ólokið. Takist Nice hins vegar ekki að vinna síðasta leikinn tekur við umspil um að halda sætinu í efstu deild.