Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel komust ekki í undanúrslitin í Meistaradeildinni í handknattleik. Liðið tapaði seinni leiknum gegn Barcelona í 8-liða úrslitum, 23:18, í Barcelona nú síðdegis.
Kiel vann fyrri leikinn í Þýskalandi 28:26 og Barcelona kemst því áfram en samanlögð úrslit urðu 49:46.
Barcelona var með undirtökin allan tímann í dag og var með fjögurra marka forystu að loknum fyrri hálfleik, 13:9. Munurinn hélst svipaður í seinni hálfleik og Börsungar því komnir í undanúrslitin, „Final Four“-helgina.
Valero Rivera var markahæstur heimamanna með sjö mörk en Marko Vujin var markahæstur gestanna með fjögur mörk.