Enginn skoraði fleiri mörk en Guðjón Valur Sigurðsson þegar Rhein-Neckar Löwen vann ellefu marka útisigur á Erlangen, 37:26, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag.
Guðjón Valur skoraði 10 mörk fyrir Löwen, sem var sex mörkum yfir í hálfleik, 19:13. Liðið slakaði ekkert á eftir hlé og uppskar sem fyrr segir 11 marka sigur, 37:26.
Alexander Petersson lét heldur ekki sitt eftir liggja hjá Löwen og skoraði sjö mörk eins og Hendrik Pekeler, en þeir komu næstir á eftir Guðjóni Val. Löwen er enn á toppi deildarinnar, nú með 49 stig og er stigi á undan Flensburg.