Leikstjórnandinn Gunnar Steinn Jónsson mun ekki taka þátt í leik Íslands gegn Makedóníu í dag, í undankeppni EM í handbolta, vegna meiðsla.
Gunnar Steinn sneri sig á ökkla á æfingu í gær og náði sér ekki af þeim meiðslum í tæka tíð fyrir leikinn sem hefst nú kl. 18.
Landsliðsmaðurinn á 30 ára afmæli í dag og hefði vísast kosið að fagna því með öðrum hætti. Liðsfélagar hans í landsliðinu sungu þó að sjálfsögðu afmælissönginn fyrir kappann og gáfu honum ís í hádeginu.
Leikur Íslands og Makedóníu er í beinni textalýsingu frá Skopje hér á mbl.is.