„Ég er bara drullusvekktur að hafa tapað, þó að við höfum verið undir nánast allan leikinn. Mér fannst við eiga að gera betur,“ sagði Aron Pálmarsson eftir tap Íslands gegn Makedóníu í Skopje í kvöld, í undankeppni EM í handbolta.
Einu marki munaði á liðunum þegar sjö mínútur voru til leiksloka en Makedónía skoraði síðustu fjögur mörkin og vann, 30:25.
„Í lokin klikkuðum við augljóslega á dauðafærum til að komast aftur inn í þetta en það var fleira sem vantaði upp á. Við byrjuðum leikinn illa. Í vörninni náðum við varla að „klukka“ þá og létum skytturnar þeirra hitna, sem er ekki gott. Svo fannst mér við líka ekki refsa þeim nægilega mikið í sókninni. Mér fannst við ekki ná að einangra þeirra slökustu varnarmenn, ekki vera nægilega klókir við það, og það þurfum við að laga fyrir næsta leik. Það var algjör óþarfi að tapa þessum leik með fimm mörkum,“ sagði Aron.
„Mér fannst við vera að spila illa en samt vorum við inni í leiknum allan tímann. Það er hundfúlt að ná ekki upp betri leik en þetta, því mér finnst við vera mikið betri en þetta lið. Ókey, við gerðum jafntefli við þá á HM og töpuðum núna, en mér finnst ekki vanta mikið upp á. Það er samt þó nokkuð, og á endanum voru það fimm mörk í dag. Við höfum lítinn tíma en þurfum að fara yfir þetta á næstu 2-3 dögum. Við erum mikið betri en þetta lið og eigum ekki að láta það gerast að tapa fyrir þeim, og hvað þá með fimm mörkum,“ sagði Aron.
Uppselt var á leikinn og var stemningin gríðarlega mikil hjá stuðningsmönnum Makedóníu allan leikinn. Aron sagði hana þó ekki hafa skipt máli:
„Nei, ekki þannig. Ég er kannski vanur þessu en ég gat ekki séð að það væri einhver skjálfandi á beinunum. Við erum með þokkalega reynslumikið lið og þessir ungu gæjar í liðinu eru búnir með eitt stórmót og þekkja þetta alveg. Auðvitað hjálpar að spila á heimavelli og vera gjörsamlega með höllina, en það hefur ekki þannig áhrif að við töpum leiknum vegna þess.“