Fram vann 33:30-heimasigur á ÍBV í fimmtu umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld. Leikurinn var nokkuð jafn en Fram hafði þó yfirhöndina í fyrri hálfleik. Fram var með þriggja marka forystu í hálfleik, 16:13, en Eyjakonur eltu framan af í síðari hálfleik.
Þegar leið á síðari hálfleik gaf ÍBV í og minnkaði muninn í tvö mörk, en Fram var þó með undirtökin og sigldi þriggja marka sigri í höfn.
Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst í liði Fram með 10 mörk, en Ragnheiður Júlíusdóttir var næst með 8 mörk. Guðrún Ósk Maríasdóttir varði 16 skot í marki Fram.
Greta Kavaliauskaite var markahæst í Eyjaliðinu með 8 mörk en Sandra Erlingsdóttir var næst með 7 mörk. Erla Rós Sigmarsdóttir varði 10 skot í marki ÍBV og Guðný Jenný Ásmundsdóttir 6 skot.
Fram komst með sigrinum upp fyrir ÍBV í annað sætið og er nú með átta stig, einu stigi á eftir toppliði Vals, en Eyjaliðið hafði ekki tapað leik á tímabilinu.
Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is í beinni textalýsingu.