Arna með fínan leik í sigri

Arna Sif Pálsdóttir.
Arna Sif Pálsdóttir. mbl.is/Golli

Landsliðskonan Arna Sif Pálsdóttir átti fínan leik fyrir DVSC Debreceni sem lagði Budaors, 29:26, í efstu deild ungverska handboltans í dag. Hún skoraði fjögur mörk, en leikurinn var jafn og spennandi allan tímann. 

Arna og stöllur hennar fóru úr 10. sæti í það 8. með sigrinum. Þær hafa unnið þrjá leiki og tapað fjórum í fyrstu sjö leikjunum. Arna gekk í raðir Debreceni frá Nice í Frakklandi fyrir tímabilið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert