Århus hafði betur gegn Kolding, 28:25, á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Alls tóku fjórir Íslendingar þátt í leiknum og skoruðu þeir 15 mörk.
Sigvaldi Guðjónsson skoraði mest þeirra eða sjö mörk fyrir Århus, Róbert Gunnarsson bætti við þremur mörkum og Ómar Ingi Magnússon tveimur í viðbót. Ólafur Gústafsson skoraði tvö mörk fyrir Kolding. Tandri Már Konráðsson komst ekki á blað hjá Skjern í 33:29-sigri.
Skjern er á toppi deildarinnar með 26 stig, Århus í 7. sæti með 15 stig og Kolding í sæti neðar, einnig með 15 stig.