Ragnar Jóhannsson skoraði fjögur mörk fyrir Hüttenberg í 32:25 tapi gegn Rúnari Kárasyni og félögum í Hannover-Burgdorf í efstu deild þýska handboltans en leikið var í Hannover í dag.
Rúnar komst ekki á blað. Hannover-Burgdorf hefur 24 stig í 4. sæti en Hüttenberg 2 stig í 16. sæti af 18 liðum.