Aron betri í dag en í gær

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. mbl.is/Eggert

Aron Pálmarsson, landsliðsmaður í handknattleik, tók ekki þátt í æfingu landsliðsins í morgun eins og mbl.is greindi frá í gær.

Aron er meiddur í baki og tók ekki þátt í síðari vináttuleik Íslands og Þýskalands á sunnudag, sem var sá síðasti fyrir Evrópumótið í Króatíu sem hefst eftir aðeins þrjá daga.

Haft er eftir Óskari Bjarna Óskarssyni aðstoðarlandsliðsþjálfara, í kvöldfréttum RÚV, að Aron ætlaði að gera allt sem hann gæti til þess að vera með á seinni æfingu landsliðsins nú í kvöld og eftir hana yrði staðan tekin frekar. Aron er betri í dag en í gær en er engu að síður enn í stífri meðhöndlun sjúkraþjálfara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert