KA/Þór hafði betur gegn ungmennaliði Vals er liðin mættust í Grill 66 deildinni, 1. deild kvenna í handbolta í dag, 26:19. Staðan í hálfleik var 12:8, KA/Þór í vil.
Martha Hermannsdóttir átti góðan leik fyrir KA/Þór og skoraði sjö mörk og þær Aldís Ásta Hreinsdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir skoruðu fjögur mörk hvor. Kristín Arndís Ólafsdóttir var markahæst í liði Vals með fimm mörk.
Með sigrinum fór KA/Þór upp í 17 stig og hefur nú tveggja stiga forskoti á toppi deildarinnar. Valsliðið er á botninum án stiga.