Landsliðsmaðurinn Ýmir Örn Gíslason lék ekki með Val gegn FH í Olís-deildinni í handknattleik í kvöld vegna hnémeiðsla.
Ýmir fékk slæmt högg á hnéð á dögunum og hann tjáði mbl.is í kvöld að talið væri að um beinmar væri að ræða.
Hann á þó eftir að fá formlega greiningu á meiðslunum og veit því ekki hversu lengi hann þarf að vera á sjúkralistanum.
Nú þegar nokkuð er liðið á keppnistímabilið þá gætu þetta verið alvarleg tíðindi fyrir ríkjandi Íslandsmeistara því Ýmir er mikilvægur hlekkur í liðið og mjög klókur varnarmaður.