Sveinbjörn Pétursson, markvörður Stjörnunnar í handknattleik karla, hefur verið úrskurðaður í þriggja leikja bann fyrir atferði sitt eftir leik Stjörunnar og Selfoss í úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar á dögunum.
Selfyssingar unnu leikinn 30:28 og tryggðu sér þar með þátttöku í undanúrslitunum en að leik loknum virtist Sveinbjörn ætla að rjúka í dómara leiksins, þá Bjarka Bóasson og Gunnar Óla Gústafsson.
Í úrskurðu aganefndar HSÍ segir að Sveinbjörn fari í leikbann vegna „ógnandi hegðunar“ og að hann hafi „gert sig líklegan til að veitast að þeim.“
Liðsfélagar Sveinbjörns gengu á milli hans og dómaranna en skömmu síðar gerði hann sig líklegan til að veitast að eftirlitsmanni leiksins.
Það var því niðurstaða aganefndar að úrskurða Sveinbjörn í þriggja leikja bann og mun hann því missa að fyrstu þremur leikjum næsta tímabils sem hefst í haust.