Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 18 ára og yngri leikur til úrslita á Evrópumótinu í Króatíu eftir 30:26-sigur á heimamönnum í dag.
Ísland fór vel af stað og náði 11:7 forskoti, en Króatar bitu frá sér og var staðan í hálfleik 13:12. Íslenska liðið var hins vegar yfir allan seinni hálfleik. Króatar náðu nokkrum sinnum að minnka muninn í eitt mark, m.a. í stöðunni 20:19.
Íslenska liðið var hins vegar betra á lokakaflanum og sigldi nokkuð öruggum sigri í hús. Eins og oft áður lék Haukur Þrastarson afar vel og gerði tíu mörk og Dagur Gautason skoraði sex.
Ísland leikur við Svíþjóð í úrslitaleik á sunnudaginn kemur kl. 15:30 að íslenskum tíma. Ísland vann 29:24-sigur á Svíum í riðlakeppninni. Svíþjóð vann Danmörk, 31:22, í hinum undanúrslitaleiknum fyrr í dag.