Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 18 ára og yngri varð að sætta sig við silfrið á Evrópumótinu í Króatíu eftir 32:27-tap gegn Svíþjóð í úrslitaleiknum í dag.
Íslensku strákarnir fóru illa af stað og lentu 7:1-undir strax snemma leiks. Þeir svöruðu þeim kafla þó heldur betur og í stöðunni 9:3 tókst Íslandi að skora sex mörk í röð. Staðan var svo jöfn í hálfleik, 12:12, en strákunum tókst þó aldrei að komast yfir.
Leikurinn var áfram stál í stál í síðari hálfleiknum en undir lok hans náði Svíar loks forystu sem þeir gáfu ekki frá sér, lokatölur 32:27. Eiríkur Guðni Þórarinsson var markahæstur í íslenska liðinu með sjö mörk og þá skoruðu þeir Dagur Gautason og Haukur Þrastarson fjögur mörk hvor.
Fyrr í dag vann Danmörk 26:24-sigur á heimamönnum í Króatíu og tók því bronsið.