Handknattleikskappinn Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Barcelona þegar liðið vann 32:29-útisigur gegn Anaitasuna í spænsku 1. deildinni í kvöld. Barcelona byrjaði leikinn betur og var staðan í hálfleik 18:15, Barcelona í vil.
Barcelona hélt þriggja marka forystu sinni allt til enda og vann að lokum nokkuð þægilegan sigur. Barcelona er sem fyrr á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eða 20 stig og hefur nú sjö stiga forskot á Bidasoa Irun sem á leik til góða á Barcelona.