Með okkar slakari leikjum í vetur

Einar Jónsson á hliðarlínunni í kvöld.
Einar Jónsson á hliðarlínunni í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við vorum rosalega lélegir í upphafi leiks og það hefur því miður gerst allt of oft í vetur,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Gróttu, í samtali við mbl.is eftir 18:24-tap fyrir Fram í botnslag Olísdeildar karla í handbolta í kvöld. 

„Við vorum slakir í sókninni. Það er mjög dapurt að skora 18 mörk. Við vorum hroðalegir einum fleiri og fórum illa með mikið af upplögðum tækifærum. Þegar sóknarleikurinn er ekki betri en þetta, þá verða þessi dauðafæri að skila sér í netið,“ sagði Einar. 

Viktor Gísli Hallgrímsson varði 23 skot í markinu hjá Fram á meðan Hreiðar Levý Guðmundsson var mjög slakur, fyrir utan stuttan kafla í seinni hálfleik. 

„Viktor var frábær í dag og ég hefði viljað sjá markvörsluna okkar betri. Hreiðar er búinn að vera frábær í vetur og það hefði verið gaman að sjá hann í 20 boltum en stundum er þetta svona. Vörnin var líka mjög slök og því miður var þetta með okkar slakari leikjum í vetur.“

Bjartur Guðmundsson hjá Gróttu fékk beint rautt spjald í fyrri hálfleik og stuttu seinna virtist Einar vilja rautt spjald á Þorstein Gauta Hjálmarsson hjá Fram. Hann kvartaði hins vegar lítið yfir dómunum eftir leik. 

„Rauða spjaldið á Bjart var hárrétt. Mér sýndist hann fara aftan í hann í hraðaupphlaupinu en Toni dómari útskýrði þetta fyrir mér. Miðað við hvernig hann útskýrði þetta var þetta hárrétt.“

Grótta er þremur stigum frá öruggu sæti í deildinni og þurfa að spila mun betur í næstu leikjum til að eiga möguleika á að halda sér uppi. 

„Við verðum að vinna flestalla leiki sem eftir eru. Frammistaðan verður að vera betri því þetta var ekki gott í dag,“ sagði Einar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert