Alþjóðadómari úr leik í bili

Anton Gylfi Pálsson að störfum.
Anton Gylfi Pálsson að störfum. mbl.is/Hari

Alþjóðadómarinn Anton Gylfi Pálsson er á sjúkralistanum nú í miðri úrslitakeppni karla á Íslandsmótinu í handknattleik.

Anton meiddist á kálfa á dögunum og dæmir í það minnsta ekki á næstu dögum. Félagi hans Jónas Elíasson mun þó væntanlega taka að sér einhver verkefni á meðan Anton er frá. Vonir standa til þess að Anton gæti mögulega beitt sér þegar líður á vikuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert