Axel hættir sem landsliðsþjálfari

Axel Stefánsson.
Axel Stefánsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Axel Stefánsson hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við Handknattleikssamband Íslands og mun því hætta sem landsliðsþjálfari kvenna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSÍ í kvöld, en þar segir að sambandið hafi verið mjög ánægt með störf Axels og telur hann hafa náð mjög góðum árangri í sínu starfi.

„Eftir 3 ár í starfi landsliðsþjálfara telur Axel að það sé tími til að fá nýja áskorun á sínum ferli. Axel vill koma fram þökkum til allra sem starfað hafa með sér á þessum tíma hjá HSÍ og óskar landsliðinu velfarnaðar,“ segir í tilkynningu HSÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert