Arnór Atlason hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við Álaborg, dönsku meistarana í handknattleik.
Arnór er aðstoðarþjálfari liðsins og er á sínu öðru tímabili í því starfi. Stefan Madsen, þjálfari liðsins, framlengdi einnig samning sinn við Álaborg fyrr í mánuðinum.
Arnór er 35 ára gamall en lagði skóna á hilluna sumarið 2018 og lauk ferlinum með Álaborg. Hann var í liði Íslands sem vann til silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og til bronsverðlauna á EM í Austurríki 2010.