Aron Kristjánsson stýrði í dag karlaliði Bareins í handbolta til 34:29-sigurs á Suður-Kóreu í hreinum úrslitaleik um sæti á Ólympíuleikunum í Tókýó á næst ári.
Staðan í hálfleik var 15:13, Suður-Kóreu í vil, en lærisveinar Arons voru sterkari í seinni hálfleik. Átta þjóðir tóku þátt í undankeppi Asíuþjóðanna um sæti á Ólympíuleikunum og vann Barein fjóra af fimm leikjum sínum.
Það verða því að minnsta kosti tveir íslenskir þjálfarar í karlaflokki í handbolta á Ólympíuleikunum. Dagur Sigurðsson er þjálfari japanska liðsins sem er þegar komið með sæti á leikunum sem gestgjafar.