Handknattleiksdeild Fram hefur sagt upp þjálfaranum Guðmundi Helga Pálssyni sem stýrt hefur karlaliði félagsins síðustu ár. Þetta staðfesti Bjarni K. Eysteinsson, formaður deildarinnar, við Vísi.
Guðmundur Helgi tók við liði Fram af Guðlaugi Arnarssyni sumarið 2016, eftir að hafa komið að þjálfun hjá ÍR og HK en hann var leikmaður Fram á árunum 1995 til 2002.
Síðasti leikur Fram undir stjórn Guðmundar var 36:26-tapið gegn FH í Safamýri í gær en liðið er með sjö stig eftir 11 leiki í Olís-deildinni, í 9. sæti af 12 liðum.
Framarar vonast samkvæmt frétt Vísis eftir því að geta tilkynnt um ráðningu nýs þjálfara á morgun.
Uppfært: Samkvæmt heimildum mbl.is er Halldór Jóhann Sigfússon að taka við Fram.