Halldór efstur á blaði hjá Fram

Halldór Jóhann Sigfússon varð bikarmeistari með FH á síðustu leiktíð.
Halldór Jóhann Sigfússon varð bikarmeistari með FH á síðustu leiktíð. mbl.is/Hari

Halldór Jóhann Sigfússon verður næsti þjálfari karlaliðs Fram í handbolta ef að líkum lætur en félagið hefur sagt upp Guðmundi Helga Pálssyni sem stýrt hafði liðinu í rúm þrjú ár.

Þetta herma heimildir mbl.is en talið er að tilkynnt verði um nýjan þjálfara Fram á morgun. Halldóri var óvænt sagt upp starfi sínu sem þjálfari U21- og U19-liða Barein í september, en áður var hann þjálfari karlaliðs FH og gerði liðið að bikarmeistara á síðustu leiktíð. Hann var ráðinn aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins í september eftir að hafa misst starf sitt í Barein.

Halldór er öllum hnútum kunnugur í Safamýri en þar spilaði hann sem leikmaður og stýrði svo kvennaliði félagsins í tvö ár. Undir hans stjórn fagnaði Fram Íslandsmeistaratitlinum árið 2013.

Næsti leikur Fram er Reykjavíkurslagur við Val í Safamýri síðdegis á laugardaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert