Jónas Elíasson og Anton Gylfi Pálsson eru á meðal dómara á Evrópumóti karla í handknattleik og þeir fengu verkefni í fyrstu umferð mótsins.
Jónas og Anton dæma viðureign Tékka og Austurríkismanna í Vínarborg á föstudaginn en það er fyrsti leikurinn í B-riðlinum sem er leikinn í höfuðborg Austurríkis. Í þeim riðli eru einnig Norður-Makedónía og Úkraína.