Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma leik Hollands og Slóveníu í undankeppni EM karla en leikurinn fer fram annað kvöld í Hollandi. Erlingur Richardsson er þjálfari hollenska liðsins. Handbolti.is greinir frá.
Er leikurinn sá fyrsti sem Anton og Jónas dæmi síðan þeir dæmdu leik Elverum og Flensburg í Meistaradeildinni 9. desember síðastliðinn.
Anton og Jónas þurftu að koma við í Noregi á leið sinni til Hollands þar sem ferðalög í Evrópu í dag eru flókin vegna kórónuveirunnar.