Svíar verða að klára heimsmeistaramótið í handknattleik án lykilmannsins Linus Perssons en hornamaðurinn fékk heilahristing eftir þungt höfuðhögg í leik Svía gegn Slóveníu í gær.
Liðin skildu jöfn, 28:28, og er mikil spenna í milliriðlinum. Fyrir lokaumferðina eru Svíar og Egyptar með sex stig en Rússar og Slóvenar fimm. Þessi fjögur lið mætast innbyrðis á sunnudaginn en þá leika Svíar við Rússa og Slóvenar við Egypta. Það eru því nánast tveir úrslitaleikir um sæti í átta liða úrslitunum. Svíar verða þó að vera án Perssons í þessum leikjum en hann datt illa á höfuðið eftir aðeins nokkurra mínútna leik í gær.
Hann hélt áfram að spila og skoraði þrjú mörk fyrir sænska liðið áður en hann var tekinn af velli eftir um stundarfjórðung þegar hann byrjaði að fá slæman höfuðverk. Albin Lagergren er á leiðinni til Egyptalands en hann mun taka sæti Perssons í sænska liðinu út mótið.