Leik Vals og Þórs í Olísdeild karla í handknattleik hefur verið frestað. Leikurinn átti að fara fram klukkan 15:00 í Origo-höllinni á Hlíðarenda í dag en getur ekki farið fram vegna ófærðar fyrir norðan.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSÍ en þar segir jafnframt að unnið sé að því að finna nýjan leiktíma.
Í gær var tilkynnt að leik Vals og KA/Þórs í Olísdeild kvenna hefði verið frestað af sömu orsökum. Sá leikur átti að fara fram klukkan 15:00 í Origo-höllinni á Hlíðarenda í gær en mun fara fram annað kvöld klukkan 18:30.
Tveir leikir fara þó fram í Olísdeild karla í dag, þeir fyrstu síðan keppni var frestað í byrjun október. ÍBV og Fram mætast í Vestmannaeyjum klukkan 13.30 og FH tekur á móti Gróttu í Kaplakrika klukkan 15.