Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik, hefur valið nítján leikmenn til æfinga hjá A-landsliði kvenna.
Hópurinn mun koma saman og æfa á höfuðborgarsvæðinu dagana 17.-21. febrúar.
Næsta verkefni kvennalandsliðsins er 19.-21. mars í undankeppni HM en liðið er með Norður-Makedóníu, Litháen og Grikklandi í riðli. Leikið verður í Norður-Makedóníu.
Vegna kórónuveirufaraldursins gat landsliðsþjálfarinn ekki valið þá leikmenn sem spila erlendis að því er fram kemur í fréttatilkynningu HSÍ.
Katrín Ósk Magnúsdóttir, markvörður Fram, og Sigríður Hauksdóttir, hornakona HK, gáfu ekki kost á sér í verkefnið.
Æfingahópur Íslands:
Markverðir:
Eva Dís Sigurðardóttir, Afturelding (0/0)
Sara Sif Helgadóttir, Fram (0/0)
Saga Sif Gísladóttir, Valur (0/0)
Aðrir leikmenn:
Ásdís Guðmundsóttir, KA/Þór (2/0)
Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV (58/118)
Eva Björk Davíðsdóttir, Stjarnan (36/28)
Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV (0/0)
Helena Rut Örvarsdóttir, Stjarnan (37/77)
Karen Knútsdóttir, Fram (102/369)
Lovísa Thompson, Valur (19/28)
Mariam Eradse, Valur (1/0)
Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram (26/27)
Rut Jónsdóttir, KA/Þór (94/191)
Steinunn Björnsdóttir, Fram (35/27)
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (56/42)
Thea Imani Sturludóttir, Valur (40/54)
Tinna Sól Björgvinsdóttir, HK (0/0)
Unnur Ómarsdóttir, Fram (29/28)
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Valur (28/14)