Stjarnan kærir framkvæmd leiksins

Helena Rut Örvarsdóttir, leikmaður Stjörnunnar.
Helena Rut Örvarsdóttir, leikmaður Stjörnunnar. Eggert Jóhannesson

Stjórn Stjörnunnar hefur ákveðið að kæra framkvæmd leiks Stjörnunnar gegn KA/Þór í Olísdeild kvenna í handknattleik í gær. Ástæðan er sú að einu marki var bætt á KA/Þór, sem vann að lokum leikinn, eins marks sigur, 27:26.

„Í fyrri hálfleik leiksins eru ranglega skráð 18 mörk á KA/Þór en í raun skoraði KA/Þór 17 mörk. Það er hafið yfir allan vafa að hálfleikstölur leiksins hefðu því átt að vera 12:17, en ekki 12:18. Í ljósi þess að markið hafði áhrif á niðurstöðu leiksins hefur stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar ákveðið að kæra framkvæmd leiksins vegna ofangreindra mistaka,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn Stjörnunnar

Þar segir einnig að vegna þessa verði þess krafist að úrslit leiksins verði leiðrétt. „Þetta atvik er ekki einungis leiðinlegt fyrir Stjörnuna heldur einnig KA/Þór og alla aðila sem komu að þessum leik. Handknattleiksdeild Stjörnunnar óskar eftir því að úrslit leiksins verði leiðrétt.“

Yfirlýsing Stjörnunnar í heild sinni:

Yfirlýsing frá stjórn Stjörnunnar vegna leiks Stjörnunnar og KA/Þórs í Olísdeild kvenna. Mistök áttu sér stað í leik Stjörnunnar og KA/Þórs í Olísdeild Kvenna þann 13. febrúar. Í fyrri hálfleik leiksins eru ranglega skráð 18 mörk á KA/Þór en í raun skoraði KA/Þór 17 mörk. Það er hafið yfir allan vafa að hálfleikstölur leiksins hefðu því átt að vera 12-17, en ekki 12-18. Í ljósi þess að markið hafði áhrif á niðurstöðu leiksins hefur Stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar ákveðið að kæra framkvæmd leiksins vegna ofangreindra mistaka. Þetta atvik er ekki einungis leiðinlegt fyrir Stjörnuna heldur einnig KA/Þór og alla aðila sem komu að þessum leik. Handknattleiksdeild Stjörnunnar óskar eftir því að úrslit leiksins verði leiðrétt. Virðingarfyllst, Pétur Bjarnason

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert