Arnar Pétursson, þjálfari A-landsliðs kvenna í handknattleik, hefur valið þá 18 leikmenn sem taka þátt í forkeppni HM í Skopje í Norður-Makedóníu í mars. Þrír nýliðar er í hópnum að þessu sinni.
Riðill íslenska liðsins fer fram dagana 19.-21. mars næstkomandi. Með íslenska liðinu í riðli eru Litháen, Grikkland og heimakonur í Norður-Makedóníu.
Íslenski hópurinn samanstendur af eftirfarandi leikmönnum:
Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Vendsyssel (25/0)
Katrín Ósk Magnúsdóttir, Fram (2/0)
Saga Sif Gísladóttir, Valur (0/0)
Aðrir leikmenn:
Ásdís Guðmundsdóttir, KA/Þór (2/0)
Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV (58/118)
Eva Björk Davíðsdóttir, Stjarnan (36/28)
Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV (0/0)
Helena Rut Örvarsdóttir, Stjarnan (37/77)
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, ÍBV (34/66)
Karen Knútsdóttir, Fram (102/369)
Lovísa Thompson, Valur (19/28)
Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram (26/27)
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, KA/Þór (94/191)
Sigríður Hauksdóttir, HK (16/34)
Steinunn Björnsdóttir, Fram (35/27)
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (56/42)
Thea Imani Sturludóttir, Valur (40/54)
Tinna Sól Björgvinsdóttir, HK (0/0)
Liðið hefur æfingar hér á landi fimmtudaginn 11. mars og heldur svo utan sunnudaginn 14. mars.
Díana Dögg Magnúsdóttir, leikmaður Sachsen Zwickau í þýsku B-deildinni, á ekki heimangengt í landsliðið að þessu sinni vegna strangra sóttvarnarreglna í Þýskalandi.
Leikjaplan íslenska liðsins er sem hér segir:
Föstudagur 19. mars kl. 16.45: Ísland – Norður-Makedónía
Laugardagur 20. mars kl. 18.45: Ísland – Grikkland
Sunnudagur 21. mars kl. 18.45: Ísland – Litháen