Sunna ekki með í kvöld

Sunna Jónsdóttir (2) verður ekki með í kvöld.
Sunna Jónsdóttir (2) verður ekki með í kvöld. Robert Spasovski

Vinstri skyttan Sunna Jónsdóttir verður ekki með íslenska kvennalandsliðinu í handknattleik í kvöld vegna meiðsla þegar liðið mætir Litháen í riðli 2 í forkeppni HM 2021.

Sunna meiddist í upphitun fyrir leik liðsins gegn Grikklandi í gær og verður ekki með í leiknum mikilvæga í kvöld, en um úrslitaleik er að ræða um hvort liðið fylgir Norður-Makedóníu upp úr riðlinum og tryggir sér þar með umspilssæti.

Steinunn Björnsdóttir hafði áður meiðst í fyrsta leiknum gegn Norður-Makedóníu, missti því af leiknum gegn Grikklandi og verður sömuleiðis ekki með í kvöld.

Arnar Pétursson landsliðsþjálfari hefur því valið þá fimmtán leikmenn sem mæta Litháen í kvöld:

Markverðir:

Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Vendsyssel (27/0)

Katrín Ósk Magnúsdóttir, Fram (4/0)

Saga Sif Gísladóttir, Valur (1/0)

Aðrir leikmenn:

Ásdís Guðmundsdóttir, KA/Þór (4/5)

Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV (60/121)

Eva Björk Davíðsdóttir, Stjarnan (38/30)

Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV (2/2)

Helena Rut Örvarsdóttir, Stjarnan (39/79)

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, ÍBV (36/67)

Lovísa Thompson, Valur (21/35)

Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram (28/34)

Rut Jónsdóttir, KA/Þór (96/201)

Sigríður Hauksdóttir, HK (18/39)

Thea Imani Sturludóttir, Valur (42/55)

Tinna Sól Björgvinsdóttir, HK (2/1)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert