KA/Þór hefur sent frá sér tilkynningu vegna ákvörðunar áfrýjunardómstóls HSÍ um að endurtaka þurfi leik Stjörnunnar og KA/Þórs í Olísdeild kvenna í handknattleik. Þar er ítrekað að KA/Þór hafi ekki fengið að taka til varna í aðdraganda dómsins og þess krafist að hann verði ógiltur eða endurupptekinn.
Í tilkynningunni segir meðal annars: „Forsvarsmönnum KA/Þórs var aldrei tilkynnt um að Stjarnan hefði áfrýjað dómi dómstóls HSÍ sem féll í málinu þann 1. mars 2021 og hvað þá heldur að áfrýjunardómstóll HSÍ væri að taka málið fyrir.
Barst KA/Þór fyrst vitneskja um málið eftir að dómur var fallinn. Augljóst er að ekkert félag innan íþróttahreyfingarinnar getur búið við það að fá ekki að taka til varnar í máli sem að því snýr.“
Sem áður segir vilja forsvarsmennj KA/Þórs því að dómur áfrýjunardómstól HSÍ verði ógiltur eða endurtekinn. „Liggur í augum uppi að mati KA/Þórs að þeir dómarar áfrýjunardómstólsins sem komist hafa að niðurstöðu og opinberað hana, án þess að gefa KA/Þór færi á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri, teljist vanhæfir til að fjalla um málið að nýju.“
Tilkynning KA/Þórs í heild sinni:
KA/Þór vill koma eftirfarandi á framfæri vegna dóms í máli nr. 1/2021 í áfrýjunardómstól HSÍ:
KA/Þór lýsir yfir furðu sinni með vinnubrögð áfrýjunardómstóls HSÍ og skrifstofu HSÍ.
Forsvarsmönnum KA/Þórs var aldrei tilkynnt um að Stjarnan hefði áfrýjað dómi dómstóls HSÍ sem féll í málinu þann 1. mars 2021 og hvað þá heldur að áfrýjunardómstóll HSÍ væri að taka málið fyrir. Barst KA/Þór fyrst vitneskja um málið eftir að dómur var fallinn. Augljóst er að ekkert félag innan íþróttahreyfingarinnar getur búið við það að fá ekki að taka til varnar í máli sem að því snýr. Rétt er að benda á að vegna málsmeðferðarreglna HSÍ er KA/Þór varnaraðili í málinu, þrátt fyrir að Stjarnan kæri framkvæmd leiksins, framkvæmd sem sama félag bar ábyrgð á.
KA/Þór hefur nú þegar óskað eftir því að dómur áfrýjunardómstóls HSÍ verði ógiltur eða endurupptekinn. Liggur í augum uppi að mati KA/Þórs að þeir dómarar áfrýjunardómstólsins sem komist hafa niðurstöðu og opinberað hana, án þess að gefa KA/Þór færi á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri, teljist vanhæfir til að fjalla um málið að nýju. Er KA/Þór enn fremur reiðubúið að fara með málið lengra enda eiga öll félög innan íþróttahreyfingarinnar að standa jöfnum fæti fyrir dómstólum sinna sérsambanda.
Ljóst er að endanleg niðurstaða þessa máls mun hafa mikil áhrif á lokaniðurstöðu Olís-deildar kvenna. Það er krafa KA/Þórs að framhald málsins verði unnið fljótt og örugglega þannig að það komi ekki til með að hafa áhrif á áðurnefnda lokaniðurstöðu mótsins eða önnur og bein áhrif á úrslitakeppnina í Olís-deild kvenna.