Gísli Þorgeir Kristjánsson, vinstri skytta þýska 1. deildarliðsins Magdeburg og íslenska landsliðsins í handknattleik, segir nýjustu axlarmeiðslin sem hann varð fyrir um helgina vera þau erfiðustu sem hann hafi orðið fyrir hingað til en að hann muni sigrast á þeim.
„Eftir öll mín axlarmeiðsli undanfarin þrjú ár varð ég því miður fyrir þeim leiðindum að fara úr axlarlið í gær og mun ég þurfa að fara í aðgerð enn eina ferðina. Verður þetta mín brattasta brekka hingað til og ætla ég að snýta henni. Takk fyrir allan stuðninginn og kveðjurnar,” skrifaði Gísli á Instagram-aðgangi sínum í gær.
Hann hefur glímt við meiðsli á hægri öxl á undanförnum árum og tvívegis verið frá keppni í talsverðan tíma af þeim sökum. Ekki liggur fyrir hve löng fjarveran verður að þessu sinni en hætt er við að hann spili ekki meira á þessu tímabili í Þýskalandi og verði ekki með landsliðinu í þeim leikjum sem eftir eru í undankeppni EM í vor.
Á sunnudaginn fór Gísli hins vegar úr vinstri axlarlið. „Ég trúi því ekki að þetta hafi gerst aftur. Þetta verður erfiðasta verkefni handboltaferils míns hingað til. En ég mun sigrast á þessu og kem sterkur til baka,“ skrifaði hann einnig á Instagram.