Patrekur tekur við nýju starfi hjá Stjörnunni

Frá undirritun samningsins í dag.
Frá undirritun samningsins í dag. Ljósmynd/Stjarnan

Patrekur Jóhannesson, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í handknattleik, hefur verið ráðinn nýr íþrótta- og rekstrarstjóri handknattleiksdeildar Stjörnunnar. Patrekur mun sinna þessu nýja starfi samhliða þjálfun meistaraflokks karla.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá handknattleiksdeild Stjörnunnar.

Hlutverk Patreks sem íþróttastjóra verður að hafa yfirumsjón með öllu starfi handboltans, allt frá yngstu iðkendum til afreksstarfsins, og er ætlað að leggja leggja faglega línu í gegnum allt starfið þar sem allir iðkendur verða þjálfaðir eftir sömu handboltastefnu upp alla yngri flokka.

Sem rekstrarstjóri deildarinnar mun Patrekur vera í mun nánara samstarfi við stjórn, meistaraflokksráð sem og barna- og unglingaráð handknattleiksdeildar. 

Þessi nýja staða þýðir að starf yfirþjálfara hjá handknattleiksdeildinni verður lagt niður.

Tilkynning handknattleiksdeildarinnar í heild sinni:

„Handknattleiksdeild Stjörnunnar leggur metnað sinn í að skapa öllum iðkendum bestu aðstæður til að vaxa og þroskast sem handboltafólk. Einn liður í því er að gera allt skipulag og starf deildarinnar nútímalegt og áhrifaríkt. 

Við kynnum því með stolti nýtt fyrirkomulag sem við teljum vera enn einn áfanga í að tryggja Stjörnuna sem handknattleiksfélag í fremstu röð. Patrekur Jóhannesson tekur við nýju starfi sem íþrótta- og rekstrarstjóri handknattleiksdeildar Stjörnunnar. Hlutverk Patreks sem íþróttastjóra er að hafa yfirumsjón með öllu starfi handboltans, allt frá yngstu iðkendum til afreksstarfsins. Hann mun leggja faglega línu í gegnum allt starfið, „bláu línuna“. Þetta mun þýða að öll þjálfun og vegferð iðkenda verður ein heildstæð samfella frá fyrstu skrefum sem ungir handboltaiðkendur og þar til þau komast inn í meistaraflokka. 

Allir iðkendur eru þjálfaðir eftir sömu handboltastefnu upp alla yngri flokka og munu fá leiðbeiningar um hvað er ætlast til að þau hafi tileinkað sér á hverju stigi. Þetta mun gera iðkendum mun auðveldara að fara upp á milli flokka og einnig auðvelda þeim að vinna með nýjum þjálfurum þar sem allir vinna eftir sömu stefnunni. 

Patrekur verður einnig rekstrarstjóri deildarinnar og verður í mun nánara samstarfi við stjórn, meistaraflokksráð sem og barna og unglingaráð handknattleiksdeildar. 

Í kjölfarið á þessum breytingum verður starf yfirþjálfara lagt niður en það hefur gegnt veigamiklu hlutverki í starfi yngri flokka félagsins en nú eru stigin stærri skref.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert