Skoraði tólf mörk fyrir Magdeburg

Ómar Ingi Magnússon er í stóru hlutverki hjá Magdeburg og …
Ómar Ingi Magnússon er í stóru hlutverki hjá Magdeburg og hann skoraði 12 mörk í dag. AFP

Ómar Ingi Magnússon var enn og aftur í lykilhlutverki hjá Magdeburg í dag þegar liðið vann allöruggan útisigur á Nordhorn, 33:26, í þýsku 1. deildinni í handknattleik.

Ómar var langmarkahæstur og skoraði 12 mörk, átta þeirra úr vítaköstum, og er sem fyrr í hópi markahæstu leikmanna deildarinnar. Gísli Þorgeir Kristjánsson er fjarri góðu gamni hjá Magdeburg vegna axlarmeiðsla en liðið er í hörkubaráttu við topp deildarinnar.

Flensburg, sem vann Leipzig fyrr í dag, 29:23, er efst með 38 stig. Rhein-Neckar Löwen er einnig með 38 stig, Kiel er með 37 stig og Magdeburg 36 stig.

Alexander Petersson náði ekki að skora fyrir Flensburg í dag og Ýmir Örn Gíslason var ekki á meðal markaskorara Löwen sem vann Coburg á útivelli, 31:28.

Þá skoraði Viggó Kristjánsson 4 mörk fyrir Stuttgart sem tapaði 24:31 á heimavelli gegn Wetzlar en Bjarki Már Elísson lék ekki með Lemgo sem vann Minden 29:27.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert