Yfirgefur danska liðið í sumar

Daníel Þór Ingason.
Daníel Þór Ingason. mbl.is/Kristinn Magnússon

Handknattleiksmaðurinn Daníel Þór Ingason verður ekki áfram í herbúðum danska úrvalsdeildarliðsins Ribe-Esbjerg eftir yfirstandandi keppnistímabil.

Þetta staðfesti Daníel í samtali við handbolti.is í dag en þó nokkrir leikmenn eru á förum frá félaginu. Ribe-Esbjerg átti erfiðan vetur og tókst ekki að vera í hópi átta efstu liða deildarinnar sem nú leika um meistaratitilinn í úrslitakeppni. Liðið leikur þess í stað um áframhaldandi sæti í úrvalsdeildinni.

Daníel er að ljúka sínu öðru tímabili með félaginu en hann fór til Danmerkur frá Haukum árið 2019. Rúnar Kárason spilar einnig með liðinu en hann hefur þegar samið við ÍBV.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert