Fyrirkomulag efstu deild kvenna á Íslandsmótinu í handknattleik verður óbreytt en Ársþing HSÍ fór fram í dag með hjálp fjarfundarbúnaðar.
Fyrir þinginu lá tillaga frá HK um að fjölga liðum í efstu deild kvenna en tillögunni var vísað frá eftir talsverðar umræður.
Átta liða leika í efstu deild kvenna, Olís-deildinni, og er útlit fyrir að svo verði áfram. Eftir miklar umræður um stöðu íþróttarinnar hérlendis í kvennaflokki var ákveðið að felsa stjórn HSí að skipa nefnd sem á að móta stefnu til framtíðar varðandi kvennahandboltann.
Ein breyting varð á stjórn HSÍ. Kosið var á milli þeirra Ingu Lilju Lárusdóttir og Daða Hafþórssonar til að gegna formennsku í fræðslu og útbreiðslunefndar sem jafnframt er stjórnarsæti. Var Inga Lilja kjörin.
Guðmundur B. Ólafsson var einn í framboði til formanns.