Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson var valinn maður leiksins hjá GOG þegar danska liðið vann pólska liðið Wisla Plock í Evrópudeildinni í handknattleik.
GOG greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni en eins og fram kom á mbl.is í gær varði Viktor Gísli tvö vítaköst í leiknum. Alls varði hann 13 skot í leiknum og var með 33% markvörslu.
GOG hafði betur 30:27 en liðin eigast eftir að mætast aftur í Póllandi.