Handknattleikskonurnar Elín Jóna Þorsteinsdóttir og Steinunn Hansdóttir leika ekki með danska liðinu Vendsyssel á næstu leiktíð. Félagið greindi frá á facebooksíðu sinni í dag.
Elín Jóna kom til Vendsyssel frá Haukum sumarið 2018 og hefur verið aðalmarkvörður íslenska landsliðsins að undanförnu. Þrátt fyrir fall Vendsyssel úr efstu deild á leiktíðinni lék hún afar vel.
Steinunn kom til Vendsyssel fyrir leiktíðina. Steinunn hefur lengi leikið í Danmörku og var hún áður hjá Horsens, Gudme og Skanderborg. Lék hún síðast með Selfossi hér á landi.
‼ Opdatering omkring holdet Vendsyssel Håndbold ‼ Vi har trukket Horsens Håndbold Elite i Santander Cuppen, som skal...
Posted by Vendsyssel Håndbold on Friday, 16 April 2021