Erlingur með Hollendinga nálægt EM

Erlingur Richardsson þjálfari hollenska landsliðið.
Erlingur Richardsson þjálfari hollenska landsliðið. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Hollenska karlalandsliðið í handknattleik, undir stjórn Erlings Richardssonar, er skrefi nær sæti í lokakeppni Evrópumótsins 2022 eftir öruggan útisigur gegn Tyrkjum í Eskisehir í dag.

Lokatölur urðu 32:24, Hollendingum í hag, eftir að þeir voru 15:12 yfir í hálfleik. Alec Smit var markahæstur Hollendinga með 6 mörk og Kay Smits skoraði fimm.

Hollendingar eru komnir með 7 stig í 5. riðli, eins og Slóvenar sem mæta Pólverjum á eftir en Pólland er með 4 stig í þriðja sætinu. Vinni Slóvenar þann leik eru Hollendingar öruggir með EM-sætið.

Uppfært kl. 19.35
Pólland vann Slóveníu 27:26 og þar með eru Slóvenía og Holland með 7 stig en Pólland 6 stig og Holland og Pólland eiga eftir að mætast í hreinum úrslitaleik um EM-sætið á sunnudaginn. Holland gæti eftir sem áður komist áfram ef liðið endar í þriðja sæti riðilsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert