Íslendingalið í úrslit Evrópudeildarinnar

Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk í undanúrslitum í dag.
Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk í undanúrslitum í dag. AFP

Þýska liðið Magdeburg tryggði sér í kvöld farseðilinn í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í handbolta með 30:29-sigri á Wisla Plock í æsispennandi undanúrslitaleik. Úrslitahelgin fer fram í Mannheim í Þýskalandi. 

Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Kristjánsson lék ekki með liðinu vegna axlarmeiðsla. 

Ljóst er að úrslitaleikurinn verður þýskur því Rhein-Nekcar Löwen og Füchse Berlin eigast við í seinni undanúrslitaleiknum. Ýmir Örn Gíslason er leikmaður Löwen. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert